Til þess að virkja skilaboðakerfið í dk þarf að fara undir Félagar > Uppsetning > Almennar stillingar > Skilaboð > Haka þar við "sýna skilaboða flipa í umsókn" og/eða "sýna skilaboða flipa á félaga". Einnig er í þessum glugga hægt að haka við "senda tölvupóst þegar nýtt skilaboð er sent" og velja þá póstfang sendanda og þau skilaboð sem eiga að sendast á netfang viðkomandi þegar skilaboð eru send úr umsókn/af félagaspjaldi.
Eftir að þessar stillingar hafa verið vistaðar ætti að birtast flipi á umsókn/félagaspjaldi sem heitir "Skilaboð", sem lítur svona út:
Skilaboðin sem þarna eru skráð birtast svo á Mínum síðum félagans sem getur svarað skilaboðunum, en svarið ætti einnig að berast undir þessum sama flipa.