Ekki hægt að hengja viðhengi við innkaupa/lánardrottnareikning

Ekki hægt að hengja viðhengi við innkaupa/lánardrottnareikning

Góðan daginn

Þegar verið er að reyna að hengja viðhengi við lánardrottnareikning og eftirfarandi villa kemur upp:

      "Cannot open file "xxxx" The system cannot find the file specified"

þá er ástæðan yfirleitt sú að notandinn hefur ekki aðgang að því skráarsvæði/möppu sem kerfið er að reyna að vista viðhengið í. Best er að nota sameiginlega möppu (á netdrifi) þar sem allir viðkomandi notendur hafa les- og skrifaðgang.

Lausn:

  1. Fara í: Lánardrottnar > Uppsetning > Almennar stillingar
  2. Opna flipann: Lánardrottnar – Skrá reikninga
  3. Í reitnum „Slóð fyrir fylgiskjöl“ setja inn slóðina á sameiginlegu möppuna.
  4. Eftir að slóðin hefur verið uppfærð geturðu farið aftur í reikninginn og reynt að hengja viðhengið við hann aftur.
            
    • Related Articles

    • Ekki hægt að opna viðhengi reikninga

      Þegar villa kemur við opnun á pdf skjali í viðhengi og merkið er Word en skráin er PDF Þarf að finna word skjal í hýsingu og hægri smella á það. Velja þar Open with > Choose another app. Þar er valið Microsoft edge og hakað í Always use this app to ...
    • Bæta við viðhengi á sölureikning

      Bæta við viðhengi á sölureikning Hægt er að bæta viðhengi við bæði óprentaða og prentaða reikninga. Sölureikningar > Uppflettingar > Prentaðir reikningar > Tvísmellir á reikninginn > Ýmislegt > Skjöl Hér er leiðbeiningar myndband: dk hugbúnaður | ...
    • Sækja bankahreyfingar - Villa 1006, Reikningur ekki til

      Sækja bankahreyfingar - Villa 1006, Reikningur ekki til Ef eftirfarandi villumelding kemur upp við innlestur bankahreyfinga þá þarf að athuga hvort bankareikningur sé rétt uppsettur. Skoða þarf því uppsetningu bankareikningsins undir Fjárhagur > ...
    • Gat ekki búið til skráarsvæði <xxxx> fyrir viðhengi í rafrænu viðskiptaskjali

      Góðan daginn Þegar verið er að stofna reikning í óstaðfestum rafrænum reikningum og villan birtist: „Gat ekki búið til skráarsvæði <xxxx> fyrir viðhengi í rafrænu viðskiptaskjali.“ þá er ástæðan yfirleitt sú að notandinn hefur ekki aðgang að því ...